Vitleysisgangur
29.08.2006 13:04:02 / della

NÝtt svæði

'Eg er alveg hætt með þessa síður er komin með aðra

amalia.bloggar.is

Mér finnst hún skemmtilegri. sjáumst hress þar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 13:27:54 / della

Nýtt svæði

Jæja ég er að prófa að gera nýja bloggsíðu og hún er

amalia.bloggar.is

endilega að kíkja á hana og kommenta og skrifa í gestabókina. Svo mun ég ákveða síðar hvora síðuna ég mun svo nota. Á nýju síðunni er hægt að hafa myndir og margt fleira sniðugt :haha:................:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 12:06:02 / della

Menning og menning

Já menningardagurinn og menningarnóttin var bara mjög fín. Rosalega mikið af fólki. Ég fór og ætlaði að horfa á Messoforte en ég sá þá ekki því það var svo mikið af fólki og mikill troðningur, en ég heyrði í þeim og þeir voru bara geggjað góðir. Hafa greinilega eingu gleymt. Það var reyndar allstaðar troðfullt á hverjum tónleikum.

Flugeldasýning var mjög góð og mynnti mann á áramótin. Ja ég nennti nú ekki að vera lengur en til 12:00 og það heppilega vill til að ég er ekki nema sirka 20 mín að labba heim úr bænum og ég gerði það bara.

Svo fer ég í smá afmæli og út að borða með afmælisbarninu í kvöld á Ítalíu, það verður geggjað.

Ja lítið er það nú þannig að ég kveð að sinni........................


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 09:50:32 / della

Hvað skal hafist

Maður er nú lítið búin að vera að brasa en það er nú búið að vera gott veður alla vikuna, sól á mánudaginn og þriðjudaginn en sólarlaust í gær. En ákvað að skella mér í sund í gær. Synti ofurlítið svona ca 500 m, það er alveg nóg. Svo skellti ég mér bara í heitu pottana. Ja svo var útlendingur sem var á hvítri brók og labbaðu um eins og herforingi milli potta og laugar og var ekkert að fela sig, þetta kallar maður sjálfstraust :lol:. Ég hélt nú að væri bannað að þvo fötin sín í sundi, hvað þá hvítum þvotti og það naríur ;)

Sundið hafðí svo líandi áhrif á mig að þegar ég var komin heim rúmlega hálf níu og var fór að horfa á imbann þá var ég alveg að sofna þanngi að ég fór að sofa hálf tíu, og allur skrokkurinn afslappaður, hef ekki sofið svona lengi í langann tíma maður 8|

Svo er menningarnótt næsta laugardag og auðvitað skellir maður sér og gerir eitthvað sniðugt sem á eftir að ákveða..........................:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 12:26:26 / della

Sunnudagur til hvíldar

Þá er helgin að alveg að klárast. Ég byrjaði helgina nú vel á föstudaginn, ég sofnaði upp í sófa rúmlega 20:00 og vaknaði rúmlega tólf á miðnætti. Horfði á eina dvd og fór svo aftur að sofa og vaknaði rúmlega 8 á laugardags morguninn :D. Ég get sagt að ég hafi verið mjög vel úthvíld. Það er ekki hægt að segja annað. Svo var nú ekki mikið brallað í gær og ekki heldur í dag, það er nú sól þannig að maður kíkir nú kannski út í sólina, aldrei að vita og fái sér smá brúnku í andlitið.

Annars er allt með kyrrum kjörum, ákvað að fara ekki í kvennareið á þessu ári. Fer bara tví efld á því næsta. Það er nú ekki hundrað í hættunni þó svo að maður sleppi einni kvennareið. Það verða fleiri en þa'ð var örugglega gaman hjá þeim sem fóru og ég vona að allt hafi gengið vel og allir hafi skemmt sér konunglega, eða réttarasagt eins og drottningar :P .

Ja það er víst ekki fleira að sinni.............................


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 09:13:01 / della

Verslunarmannahelgin eins og hún leggur sig

Jæja eftir vinnu á föstudaginn var brunað beint í norðurlandið og var maður komin þangað rétt fyrir níu. Þá var skellt sér að skoða tryppið mitt og Skugginn er svona nokkuð góður þannig að hann koma barasta heim. Svo á laugardags eftirmiðdeginu þá var riðið að Bergstöðum og svo til baka á sunnudaginn. Gantur hann var svo hress og kátur að hann var annað hvort á hraðri milli ferð eða bara á fullri yfirferð, það var nú lítið annað í boði svona fyrsta áfangann, en svo lagaðist það auðvitað. Ferðin var mjög skemmtileg þó svo að það hafi verið rigning allan tímann, bara mismikil rigning.

Á heimleiðinni þá sáum við pabbi hval rétt fyrir utan Skarð, það var mjög gaman.

Á mánudaginn ákvað ég nú að prófa tryppið mitt, þar sem það er komið heim. Og við byrjuðum bara í litla gerðinu í Glaðheimum og það gékk svona asskoti vel þannig að ég og Skuggi fórum bara í lítinn reiðtúr og það gékk bara mjög vel. Töltið er alveg að koma og hann er bara orðinn viljugur og fínn. Það verður gaman að vinna með hann næsta vetur, hlakkka bara til :P.

Það verður nú ekki amalegt að hafa tvo mjög viljuga klára, spurning hvort að það verði hringaviltleysa :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 19:48:46 / della

Loksins loksins

Loksins komst netið í gang heima hjá mér. Í nýju íbúðinni, það komst loks í lag í kvöld bara rétt fyrir hálf sjö og geri aðrir betur. JÆja þannig að núna getur maður verið að skondrast á netinu þegar maður er ekki í vinnunni, gaman gaman :D

Það er alveg geggjað veður í dag og ég var ekki búin í vinnunni fyrr en korter í sex og það var nú ekkert rosalega gaman og svo voru auðvitað mánaðarmót og því var mikið að gera og farið heim rétt fyrir fimm. En vonandi verður bara gott veður á morgun og ég get þá verið á svölunum í sólbaði og fengið smá lit kannski ;)

Já svo er ég að bíða eftir restinni af rúminu mínu, það átti að koma í dag en fæ það víst ekki fyrr en á morgun, það verður gaman að komast af gólfinu og upp í einhverja hæð :haha:.

Ja lítið er það víst í bili........................................


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 09:33:31 / della

Flutningar ó flutningar

Já þá eru þessir blessaðir flutningar búnir. ÉG flutti allt draslið mitt á laugardaginn og það tók bara allan daginn og á sunnudaginn var ég gjörsamlega búin á því. Og er ennþá þreytt og með strengi í fótum, baki og öxlum, gaman gaman.

Það er ekkert smá gaman að vera komin í fína íbúð núna, með svalir og allt. Alveg meiri háttar. En ég á enn eftir að raða slatta en það kemur bara í vikunni eða næstu viku. Svo var ég svo heppin að mamma kom á rauðu drossíunni og með kerruna og dýnurnar mínar og svo gat ég notað kerruna til fluttninga og við það flýtti það fyrir. Svo fengum við einnig tvo aðstoðarmenn að bera þyngstu hlutina.

Svo bauð ég allri hersingunni í mat, skellti bara læri í ofn og lét malla og allir voru ánægðir með afraksturinn.

Svo ákvað ég nú skella mér í bað í gærkveldi og nennti nú ekkert að passa hárið því ég ætlaði svo að þrífa hárið í morgun en það var því miður ekki hægt því það var heitavatnslaust :(, en það reddaðist, skellti bara köldu vatni á hausinn og slatta af geli þannig að hárið liggi nú niðri en standi ekki út í loftið :P.

Svo skellti ég mér í bíó í gærdag, á Pirates of the carabien og hún er geggjað góð og frábær atriði og brellurnar maður. Mæli eindregið með henni. Netið er ekki komið í lag en það á að koma í þessari viku einhvern tímann.

Jæja ekki fleira í dag....................................


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 09:32:12 / della

Svo er það

Jæja ég er öll komin til eftir brunan og er komin með allt í lagi brúan lit þar sem áður var brunarúst, gaman það.

Jæja svo er maður að pakka niður á fullu, mér finnst það reyndar ekki gaman. ER að flytja í nýtt húsnæði, það verður gaman. Íbúðin er á 3ju hæð og er með svölum, þannig að það er eins gott að það verði gott verðu í ágúst svo að maður geti legið í tani eftir vinnu og um helgar á svölunum.  Það verður spennandi að flytja þar sem það er engin lyfta í húsinu, þetta verður svona smá þrekþjálfun :haha:

Annars er lítið planað um helgina nema að pakka niður og pakka upp aftur og svona. Vonandi eiga allir góða helgi................................;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 09:52:05 / della

Bruni og aftur bruni

Jæja það var skellt sér í norðurlandið strax eftir vinnu á föstudaginn. Svo þegar maður var kominn norður þá var kvöldmatur tilbúinn, ekki amalegt það. Svo var skellt sér og tryppið prófað og Skugginn minn er nú að verða svona taminn, þetta litla grei. Hann verður samt aðeins lengur, svona bara til öryggis.

Jæja svo var skellt sér á mót til þess að keppa, var á tveimur hestun í Fjórgangi og svo einum í tölti. Svo komst ég í úrslit í Fjórgangi og fékk 5. sæti, ég held að það sé bara mjög gott þar sem klárinn er ekki í mjög góðu formi. Það var gaman að keppa og líka að horfa á aðra keppendur spreyta sig.

Það var sól bæði laugardag og sunnudag og ég brann í framan og á öxlunum, ekki gaman það. Vonandi verður maður bara skrárri á morgun.  

Þannig að hin fínasta helgi liðinn og maður fer bara sæll og glaður inn í nýja vinnuviku :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 09:06:10 / della

Sól sól skín á mig

Það var geggjað gott veður í gær og við fengum 45 mín í matarhlé vegna veður. Svo núna er líka aftur svona gott veður og spurning hvort maður fái lengri matartími til að sóla sig í hádeginu :D.

Vonandi líður dagurinn fljótt því ég er að hugsa um að skella mér bara í norðurlandið strax eftir vinnu. Kíkja á gæðingana mína og horfa á kannski eitt stikki íþróttamót. Já svo auðvitað að kíkja á tryppið mitt og athuga hvort það sé ekki að verða að tömdi hrossi :haha:

Ja ekki fleira að þessu sinni.........................................


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 09:15:24 / della

Liggur þannig í því

Ég skellti mér í heimsókn í gær og við fórum út að borða á KB kjúkkling. Það er bara hinn fínasti matur þar. kjúlli getur náttúrulega ekki klikkað.

Ég sendi hestana mína í sveitina á mánudaginn og það var nú ekkert gaman. Þeir una sér bara vel á heimahögum. Svo er aldrei að vita nema maður skelli sér í heimsókn til þeirra næstu helgi :haha:.

Það var nú bara sól þegar ég labbaði í vinnuna og vonandi helst hún þegar maður er búinn að vinna......................................


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 09:42:29 / della

Hvað sem er eða eitthvað

Ég skellti mér nú bara í bíó í gærkveldi, á Superman returns. Hún er alveg rosalega góð, og strákurinn er mjög líkur gamla superman. Myndin er 2 og hálfur tími og líður mjög hratt.

Það hefur nú ekki verið hæt að fara mikið á hestbak þessa vikuna því það er búið að rigna alla blessuðu vikuna. Núna er örlítil sól og vonandi helst það í dag svo að maður geti nú skellt sér á bak aðeins. 

Jæja það er víst ekki fleira að sinni, lítið að gerast þessa daganna.......................


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 10:42:22 / della

Bíllinn minn ó bíllinn minn

Jæja ég er búin að skella bílnum í skoðun og viti menn ég fékk endurskoðun. Ekki út af því að það var eitthvað að bremsunum, ljósabúnaði, dekkjum eða þess háttar. Heldur vegna þess að hliðarspegillinn minn vinstra megin er brotinn og öryggispúðaljósið logar. Ég myndi nú ekki kalla þetta stór mál og ekki þurfa endurskoðun, ég þarf greinilega að líta út eins og Paris Hilton til þess að geta blikkað þessa kalla og fá allt sem maður vill :lol:.  Mér finnst þetta ekkert smá hallærislegt að fá endurskoðun á svona smámuni. Jæja ætli það sé ekki best að fjárfesti í nýjum spegli og taka þetta ljós úr sambandi og skella sér svo aftur til mannsins, þvílíkt vesen.

Jæja vonandi verður restin af deginum góður, ekki var nú þetta góð byrjun en fall er fararheill, svo er sagt allavega :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 07:09:20 / della

Þriðjudagur til lukkur

Ja helgin bara búin og einn vinnudagur til, sei sei og sei. Það var nú lítið brallað um helgina, bara slappað af og skellt sér á hestbak. Svo í dag er náttúrulega rigning, hvað annað. Ég á að mæta með bílinn minn í skoðun núna á eftir, það verður gaman hvað skoðunarmaðurinn mun segja um bílinn minn, vonandi fæ ég ekki endurskoðun, er ekki alveg að nenna því og hvað þá að fara með bílinn í viðgerð. Krossum fíngur og vonum allt það besta bara :D.

Annars stendur maður í íbúðarleitum á fullu, það er til fullt af íbúðum til leigu en leigan er geggjað há maður. Svo vill maður náttúrulega ekki búa hvar sem er auðvitað. Ef einhver veit um góða íbúð á góðu verðir (fyrir þann sem borgar ) þá endilega láta mig vita :lol:.

Það var keppni Hjá KB banka og útibúið sem ég vinn í það vann, bæði allt útibúið og svo einstaklingskeppnin. Svo á föstudaginn þá fengum við osta og rauðvín í kaffinu. Ég hef aldrei áður fengið leifi í vinnunni að drekka áfengi, mátti reyndar bara drekka hálft rauðvínsglas en þetta var geggjað gaman. Svo var náttúrulega fengið sér eftir vinnu og skrafað  :P.

Það er nú ekki mikið þessa daga þannig að ég kveð að sinni......:haha:........


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan